Nefna - app fyrir íslensk mannanöfn
- þegar nefna á nafn
Nefna 3.0
- Nýtt útlit, hannað af Einari Jóni Kjartanssyni - einarjon.com
- Sérhannað fyrir bæði iPad og iPhone
- Nánari upplýsingum um nöfn er núna hægt að fletta eins og spilum á hendi (í stað þess að þurfa að fara úr og í lista fyrir hvert nafn)
- Lukkuhjól sem birtir nöfn af handahófi úr öllum nafnalistanum, svona til gamans og mögulega gagns; það gætu birst nöfn sem kæmu skemmtilega á óvart
- Lukkuhjól sem birtir nöfn af handahófi úr uppáhalds-listanum; mögulega gagnlegra hjól en það fyrra, þar sem undir eru nöfn sem öll koma til greina - kemur nafnið enn til greina þegar það birtist óvænt?
- Nafnaspilum og lukkuhjólaskjám er hægt að deila, til dæmis með tölvupósti, spjallskilaboðum eða jafnvel á samfélagsmiðla, ásamt því að vista í myndasafnið
- 182 nöfnum bætt við, þeim sem hafa verið samþykkt síðan síðasta uppfærsla var gefin út (2014)
- Merkingum bætt við fjölda nafna og sumar lagfærðar - margar þeirra hafa borist með ábendingum frá notendum og þökkum við kærlega fyrir þær (í þessari útgáfu er ábendingahnappurinn ekki lengur á upplýsingaskjá hvers nafns en það má áfram senda okkur póst með því að smella á fuglinn eða tannhjólið)
- Nýjustu tölur um fjölda nafnbera frá Hagstofunni
- Nýir flokkar hafa bæst við
Með nýjustu uppfærslu Nefnunnar er hægt að:
- fjarlægja auglýsingar
- leita að einstökum nöfnum eða þeim sem innihalda tiltekna stafarunu
- sjá aðeins nöfn sem innihalda:
~ tiltekinn fjölda atkvæða eða
~ takmarkaðan fjölda íslenskra stafa
- velja hve vinsæl nöfn sjást
- skrá eftirnafn með birtingu nafna
- ákveða upphafsstafi nafna
Þar að auki inniheldur hún:
* Útlitsuppfærslu
* Nýja flokka
* Merkingar fleiri nafna (þar á meðal ábendingar frá notendum - takk!)
* 79 nýsamþykkt nöfn
Til að fylgjast með uppfærslum Nefnunnar er hægt að skrá sig á póstlista appsins - við lofum að fara vel með netfangið þitt og það er auðvelt að afskrá sig hvenær sem er.
Nöfn á netinu
Nafngiftir Íslendinga eru háðar lögum og reglum sem mannanafnanefnd byggir á svonefnda mannanafnaskrá um eiginnöfn og millinöfn sem teljast heimil samkvæmt þeim. Við nafngjöf er hægt að hafa þessa skrá til viðmiðunar en einnig er upplýsingar um íslensk nöfn að finna í bókum og víðar á vefnum. Þar má nefna bækurnar Nöfn Íslendinga sem er einnig aðgengileg á vefnum í áskrift og Íslensk mannanöfn. Fyrir utan opinberu mannanafnaskrána eru skrár yfir íslensk mannanöfn einnig að finna á nafn.is, mannanofn.barnaland.is og ungi.is.
Til gamans má svo benda má svo benda á lista yfir ónotuð íslensk mannanöfn frá landnámi og miðöldum :)
Nördinn
iOS útgáfa Nefnunnar er forrituð í Objective-C með þróunartólinu Xcode. Gagnaöflun forrituð á node.js.
Grafík er unnin með Inkscape og GIMP.
Kóði og tilheyrandi er hýst á GitHub og haldið utan um verkþætti á Trello.